Smádýrabókin
Ediksgerla
Drosophila melanogaster
- Þarf meindýraeyði?
Fer eftir aðstæðum
Viðvarandi flugnager getur bent til uppeldisstaðar eða lífrænna leifa sem þarf að finna og fjarlægja.
- Mögulegur skaði
Hvimleið á heimilum, óviðunandi í matvælarými
- Við hverju má búast
Fjarlægja þarf uppsprettuna og fylgjast með hvort fleiri flugur birtast, þar sem lirfur eða púpur geta verið eftir annars staðar.
Ekki viss? Hringdu og lýstu dýrinu. Greiningin í símanum er ókeypis.

Um tegundina
Ediksgerlan er örsmá, gulbrún fluga með rauð augu sem sveimar yfir þroskuðum ávöxtum, flöskuskilum og lífrænum úrgangi. Hún fjölgar sér hratt í gerjandi efni og getur orðið til ama á fáeinum dögum ef uppsprettan fær að standa. Á heimilum er hún fyrst og fremst hvimleið. Í matvælafyrirtækjum er hún alvarlegra mál. Lausnin liggur nær alltaf í að finna og fjarlægja gerjandi efnið sem hún verpir í.
Staðreyndir
- Latneskt heiti
- Drosophila melanogaster
- Enskt heiti
- Fruit fly
- Kjöraðstæður
- Gerjandi ávextir
- Lífsferill
- Lirfa getur þroskast í flugu á 10-12 dögum við góð skilyrði
Viðbrögð og meðhöndlun
Leit að uppsprettu, hreinsun og flugnavarnir eftir þörfum
Meðhöndlun fer eftir tegund, umfangi og aðstæðum. Ekki er alltaf þörf á efnum. Séu efni notuð eru þau leyfð til viðkomandi notkunar hér á landi og fylgja þarf notkunarleiðbeiningum og fyrirmælum meindýraeyðis.
Ertu með óboðinn gest?
Hringdu og lýstu dýrinu. Ráðgjöfin er ókeypis og oft leysist málið í einu símtali.