Smádýrabókin
Gestamotti
Endrosis sarcitrella
- Þarf meindýraeyði?
Fer eftir aðstæðum
Lirfur geta skemmt textíl og dýraafurðir, svo leita þarf að uppsprettu og meta umfangið áður en aðferð er valin.
- Mögulegur skaði
Nærist á ull, loðskinni, öðrum lífrænum fatnaði og flestum matvælum
- Við hverju má búast
Þrif og meðhöndlun á sýktum munum draga úr uppsprettunni, en aðferð, tímalengd og eftirfylgni ráðast af umfangi og því sem munirnir þola.
Ekki viss? Hringdu og lýstu dýrinu. Greiningin í símanum er ókeypis.

Um tegundina
Gestamotti er lítið mölfiðrildi og þekkist á snjóhvítum haus og herðum sem stinga í stúf við flikrótta, brúnyrjaða vængi. Lirfurnar nærast á ull, loðskinni og öðrum lífrænum fatnaði en líka á flestum matvælum og lífrænum leifum. Þess vegna finnst hann í fataskápum, geymslum og eldhússkápum við þurrvöru.
Staðreyndir
- Latneskt heiti
- Endrosis sarcitrella
- Enskt heiti
- White-shouldered house moth
- Kjöraðstæður
- Lífrænn fatnaður
- Lífsferill
- Fullorðin fiðrildi lifa fáeina daga við stofuhita, lengur í svala
Viðbrögð og meðhöndlun
Yfirferð á textíl, þrif og meðhöndlun eftir þörfum
Meðhöndlun fer eftir tegund, umfangi og aðstæðum. Ekki er alltaf þörf á efnum. Séu efni notuð eru þau leyfð til viðkomandi notkunar hér á landi og fylgja þarf notkunarleiðbeiningum og fyrirmælum meindýraeyðis.
Ertu með óboðinn gest?
Hringdu og lýstu dýrinu. Ráðgjöfin er ókeypis og oft leysist málið í einu símtali.