Smádýrabókin
Hveitibjalla
Tribolium destructor
- Þarf meindýraeyði?
Fer eftir aðstæðum
Oft má byrja á að farga sýktri vöru og þrífa geymslustaði, en viðvarandi eða útbreiddur vandi kallar á mat á frekari aðgerðum.
- Mögulegur skaði
Nærist á hveiti, korni og brauðvöru
- Við hverju má búast
Fjarlægja þarf sýkta vöru og hreinsa skápa og geymslustaði, síðan fylgjast með hvort fleiri dýr birtast og meta frekari meðhöndlun eftir þörfum.
Ekki viss? Hringdu og lýstu dýrinu. Greiningin í símanum er ókeypis.

Um tegundina
Hveitibjallan er dökkbrún til svartleit, lengjulaga bjalla sem lifir í þurrvöru og getur orðið langlíf í eldhússkápum. Hún gengur á hveiti, korn og brauðvöru og finnst oftast í opnum pökkum eða í hveitileifum í hillum og skúffum. Bjöllurnar skríða sjálfar milli skápa og því dugar sjaldnast að henda einum pakka.
Staðreyndir
- Latneskt heiti
- Tribolium destructor
- Enskt heiti
- Destructive flour beetle
- Kjöraðstæður
- Hveiti
- Lífsferill
- Fullorðnar bjöllur geta lifað allt að þrjú ár
Viðbrögð og meðhöndlun
Yfirferð á matvælum, förgun sýktrar vöru og þrif
Meðhöndlun fer eftir tegund, umfangi og aðstæðum. Ekki er alltaf þörf á efnum. Séu efni notuð eru þau leyfð til viðkomandi notkunar hér á landi og fylgja þarf notkunarleiðbeiningum og fyrirmælum meindýraeyðis.
Ertu með óboðinn gest?
Hringdu og lýstu dýrinu. Ráðgjöfin er ókeypis og oft leysist málið í einu símtali.