Smádýrabókin
Nágæra
Dermestes peruvianus
- Þarf meindýraeyði?
Fer eftir aðstæðum
Endurtekin ummerki geta bent til uppsprettu í matvælum eða lífrænum leifum sem þarf að finna og fjarlægja.
- Mögulegur skaði
Skemmir prótínríka vöru. Lirfur bora í tré og einangrun
- Við hverju má búast
Fjarlægja þarf uppsprettuna og hreinsa svæðið, síðan fylgjast með ummerkjum og meta hvort frekari meðhöndlunar sé þörf.
Ekki viss? Hringdu og lýstu dýrinu. Greiningin í símanum er ókeypis.

Um tegundina
Nágæran er dökkbrún, ílöng bjalla sem hefur komið sér fyrir í upphituðum húsum hér á landi. Hún nærist á þurru prótíni á borð við dauð skordýr, hár, fjaðrir og matarleifar og finnst gjarnan undir gólfum, í loftrásum og öðrum afkimum þar sem lífrænt efni safnast. Fullvaxnar lirfur bora sig inn í tré, einangrun og jafnvel plast til að púpa sig.
Staðreyndir
- Latneskt heiti
- Dermestes peruvianus
- Enskt heiti
- Peruvian hide beetle
- Kjöraðstæður
- Þurrt prótín í afkimum
- Lífsferill
- Breytilegur eftir aðstæðum og lífsstigi
Viðbrögð og meðhöndlun
Leit að uppsprettu, hreinsun og meðhöndlun eftir þörfum
Meðhöndlun fer eftir tegund, umfangi og aðstæðum. Ekki er alltaf þörf á efnum. Séu efni notuð eru þau leyfð til viðkomandi notkunar hér á landi og fylgja þarf notkunarleiðbeiningum og fyrirmælum meindýraeyðis.
Ertu með óboðinn gest?
Hringdu og lýstu dýrinu. Ráðgjöfin er ókeypis og oft leysist málið í einu símtali.