Beint í efni
Til baka í Smádýrabókina

Smádýrabókin

Pelsgæra

Attagenus woodroffei

Fullvaxin: 4–6 mm · Lirfa: 10–11 mm

Þarf meindýraeyði?

Fer eftir aðstæðum

Lirfur geta skemmt textíl og dýraafurðir, svo leita þarf að uppsprettu og meta umfangið áður en aðferð er valin.

Mögulegur skaði

Nærist á ull, loðskinni og öðrum lífrænum fatnaði

Við hverju má búast

Þrif og meðhöndlun á sýktum munum draga úr uppsprettunni, en aðferð, tímalengd og eftirfylgni ráðast af umfangi og því sem munirnir þola.

Ekki viss? Hringdu og lýstu dýrinu. Greiningin í símanum er ókeypis.

Skýringarmynd: Pelsgæra (Attagenus woodroffei), heilt dýr á ljósum fleti.
Attagenus woodroffei (Woodroffe's fur beetle)Byggt á ljósmynd: Erling Ólafsson, Náttúrufræðistofnun Íslands

Um tegundina

Pelsgæran er lítil, dökkbrún bjalla, náskyld feldgærunni, og lifir á ull, loðskinni og öðrum dýraafurðum. Loðnu lirfurnar halda sig í dimmum fataskápum, undir rúmum og í gólfrifum þar sem ló og hár safnast. Þær naga óreglulega bletti í ullarflíkur og teppi. Fullorðnu bjöllurnar leita í glugga á vorin þegar þær ganga úr púpu.

Staðreyndir

Latneskt heiti
Attagenus woodroffei
Enskt heiti
Woodroffe's fur beetle
Kjöraðstæður
Lífrænn fatnaður
Lífsferill
Lirfuþroski getur tekið 3-4 mánuði við góð skilyrði, lengur við lakari kjör

Viðbrögð og meðhöndlun

Yfirferð á textíl, þrif og meðhöndlun eftir þörfum

Meðhöndlun fer eftir tegund, umfangi og aðstæðum. Ekki er alltaf þörf á efnum. Séu efni notuð eru þau leyfð til viðkomandi notkunar hér á landi og fylgja þarf notkunarleiðbeiningum og fyrirmælum meindýraeyðis.

Ertu með óboðinn gest?

Hringdu og lýstu dýrinu. Ráðgjöfin er ókeypis og oft leysist málið í einu símtali.